Anna Rósa

Anna Rósa

12.09.2006 14:10:49 / annarosa

nýtt blogg

Þá ætla ég að prufa nýtt blogg og svo sjáum við til hvort ég verði alfarið þar eða komi aftur hingað en nýja bloggið er arg.bloggar.is

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 12:11:49 / annarosa

ein tilraun í viðbót

Jæja ég hef nú ansi góða afsökun fyrir því að hafa ekki bloggað svona lengi en það dettur alltaf allt út sem ég er búin að skrifa já og svo er ég auðvitað að halda uppi tveim heimasíðum, bæði þessari og barnalandssíðunni hans Ólafs Vignis.

Það hefur svosem ekki margt gerst síðan síðast, ekki svo ég muni allavega. Við vorum í nokkra daga inní saurbæ að taka á móti fólki í ferðaþjónustuna á meðan Óli og Ingunn voru úti, það var ágætt fyrir utan ítala fífl sem var með vesen og óð inn á okkur aftur og aftur á meðan ég var að gefa Ólafi Vigni og svo óð hann inní þvottahús og ætlaði að setja í vél og svo ætlaði hann að fá að hringja til útlanda og hann vildi að ég væri að keyra hann hingað og þangað en ég var bæði bíllaus og með Ólaf Vigni. En þetta var semsagt svona misgaman:S

Það er svosem ekkert sem  ég man eftir að segja frá svo ef eitthver vill fá að vita hvað er búið að vera um að vera hér hjá okkur þá skrifa á reglulega inná barnalandssíðuna svo ég bendi fólki bara á að lesa þar.

og svo kvitta takk

Anna Rósa


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 12:11:48 / annarosa

ein tilraun í viðbót

Jæja ég hef nú ansi góða afsökun fyrir því að hafa ekki bloggað svona lengi en það dettur alltaf allt út sem ég er búin að skrifa já og svo er ég auðvitað að halda uppi tveim heimasíðum, bæði þessari og barnalandssíðunni hans Ólafs Vignis.

Það hefur svosem ekki margt gerst síðan síðast, ekki svo ég muni allavega. Við vorum í nokkra daga inní saurbæ að taka á móti fólki í ferðaþjónustuna á meðan Óli og Ingunn voru úti, það var ágætt fyrir utan ítala fífl sem var með vesen og óð inn á okkur aftur og aftur á meðan ég var að gefa Ólafi Vigni og svo óð hann inní þvottahús og ætlaði að setja í vél og svo ætlaði hann að fá að hringja til útlanda og hann vildi að ég væri að keyra hann hingað og þangað en ég var bæði bíllaus og með Ólaf Vigni. En þetta var semsagt svona misgaman:S

Það er svosem ekkert sem  ég man eftir að segja frá svo ef eitthver vill fá að vita hvað er búið að vera um að vera hér hjá okkur þá skrifa á reglulega inná barnalandssíðuna svo ég bendi fólki bara á að lesa þar.

og svo kvitta takk

Anna Rósa


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 15:07:02 / annarosa

þriðjudagur

Á föstudaginn þá kom Birkir og var hann hér alla helgina. Svo á laugardaginn þá fórum við fjölskyldan í bæinn og sá stutti svaf báðar leiðir og allan tímann í bænum en við lögðum af stað um hálf 11 og svo stoppuðum við í bgn og þar gaf ég Ólafi Vigni og hann fékk hreyna bleiu og svo fótum við í bæinn og vorum komin þangað kl hálf 2 og svaf Ólafur alla leiðina. Svo fórum við í ólavía og óliver og hann svaf þar og svo um 2 komum við í smáralind og hann svaf allan tíman þar en það var til kl hálf 6. svo fórum við í elko en hann var vakandi þar en samt rólegur. Hann fékk svo að drekka og hreyna bleiu og við lögðum af stað uppí borgarnes og svaf hann líka alla leiðina þangað. Við fengum að borða og svoleiðis í borgarnesi og svo fóum við heim og vitiði hvað Ólafu Vignir svaf alla leiðina...voðalega getur hann sofið.:D já en í bænum keypti ég mér gallabuxur, 4 peysur, veski og tvo boli. Jón Ingi keypti sér eitthvað skotdrasl og buxur en herrann fékk adidasgalla, slefsmekki og tvennar buxur og svo eina flotta kerru sem er hægt að festa bílstólinn hans á og svo getur hann notað kerruna alveg þar til hann byrjar í skóla, það er skyggni á henni og hægt að stilla bakið á þrjá vegu. En eins og öllum sé ekki sama hversu flott þessi kerra sér. Ég var að panta fyrir hann ömmustól/ruggustóll á netinu en það er hægt að nota þetta sem ömmustól og svo þegar hann eldist þá er hægt að taka dótið af og þá er þetta ruggustóll og hann má nota þetta þar til hann verður 18 kg. Ég var líka að kaupa spiladós og svona kitt til að búa til kristalafsteipu af höndum og fótum á svona litlum börnum.

Svo í gær þá fórum við Ólafur Vignir í heimsókn til Sunnevu og Maríu Unu og vá hvað María er búin að stækka mikið, engin smá dúlla. Við vorum bara að spjalla og svo fórum við Ólafur Vignir bara heim.

jæja gott í bili

anna

p.s. þetta er það sem ég var að kaupa

http://www.fisher-price.com/fp.aspx?st=2001&e=detail&site=us&pid=31327&selcat=bgb

 þetta er stóllinn

http://www.fisher-price.com/fp.aspx?st=2001&e=detail&site=us&pid=33157&selcat=bgtoys

 þetta er spiladósin

http://www.memoryhands.com/product.asp?i=4

 þetta er mótið

» 4 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 13:11:28 / annarosa

föstudagur

Já er þá komin tími á smá blogg. Síðasta hlegi var bara róleg hjá okkur fjölskyldunni, við gerðum ekkert á föstudaginn og svo fórum við í sumarbústað hjá ömmu og afa Jóns Inga á laugardaginn og þar voru nokkrir ættingjar hans saman kominir. Við stoppuðum nú bara stutt og fórum bara heim. Um kvöldið þá kíktum við í Árblik með dót fyrir mömmu en þar var fjölskyldan mín samankomin í hestaferð, við stoppuðum nú ekkert þar því klukkan var orðin margt og tími fyrir Ólaf Vigni að fara að sofa. á Sunnudeginum þá fór ég að sækja mömmu í árblik eftir að hafa komið Ólafi Vigni út í vagn. Mamma var svo hjá okkur mest allan daginn. Sigga Hrönn vinkona mömmu kíkti til okkar til að sjá prinsinn. Svo fórum við uppí árblik til að gá hvort hestafólkið væri komið úr reiðtúrnum og þau voru það ekki svo við fórum inní hörðudal og hittum þau þar og voru þau bara að koma úr reiðtúrnum og voru þau bara að ganga frá hnökkunum. Við Jón Ingi skuttluðum þá mömmu bara uppí árblik og fórum svo heim. Á mánudaginn þá fórum við vestur til tengdó. Við vorum komin þangað um fjögur og fljótlega þá setti ég Ólaf Vigni út í vagn og svo fórum við Jón Ingi niðrí girðingu til að kíkja á folöldin sem voru komin, og vá hvað mig langar í tvö. En svo eftir matinn þá fórum við heim. Síðan er ég bara búin að hanga hér með Ólafi Vigni. Birgitta og Rakel kíktu á miðvikudaginn og svo fórum við Birgitta út að labba og kíktum í búðina en þar vildu auðvitað allir sjá Ólaf Vigni. Svo í gær kom Rúna, en þau voru að koma frá spáni, og gaf hún Ólafi Vigni svona spiladós með mynd sem hreyfist og finnst honum þetta alveg æði, samt stendur á kassanum að þetta sé fyrir 18 mánuða+, meira ruglið því honum finnst gaman að þessu en nennir ekki að horfa á þetta lengi í einu samt.

munið að kvitta

Anna


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 00:22:01 / annarosa

Mobile

Broskall Myndir0082.jpeg

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 14:46:02 / annarosa

Mobile

bara ad setja mynd af prinsinum Myndir0074.jpeg

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 00:07:18 / annarosa

skoðanakönnun


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 14:34:16 / annarosa

KVITTA

Kvitta fyrir sig. En já við höfum það bara mjög gott og prinsinn er komin með pínu svefnrútínu en hann fer að sofa með mér um miðnætti og við sofum til svona 10 eða 11 en hann vaknar um 6 til að drekka og svo vaknar hann oftast um 8 þegar Jón Ingi fer í vinnuna en í bæði skiptin er hann fljótur að sofna aftur. Svo um 10 eða 11 þá gef ég honum að drekka og svo förum við fram þar sem hann liggur á leikteppinu eða í vöggunni eða situr í ömmustólun að spjalla við sjálfan sig í smá stund. svo þegar hann er búin að vera vakandi í um eina og hálfa klukkustund þá fær hann bleiu og svo drekkur hann og svo beint útí vagn að sofa þar sem hann sefur í 2-4 klst. Þetta er ekkert smá nice svona. svo dottar hann nú oftast inni rétt fyrir kvöldmat. En eins og öllum sé ekki nokkuð sama um svefninn hjá Ólafi Vigni. Það er bara svo fátt annað sem ég hef að tala um þar sem við erum bara tvö mest allan daginn eða þar til Jón Ingi kemur heim og oft er hann rokin út jafn óðum aftur, í fótbolta eða þvo bílana eða eitthvað svoleiðis. Nei hann er jú duglegur að hafa Ólaf Vigni á kvöldin þegar hann er ekki að gera eitthvað annað. Þá fæ ég smá frí til að fara í sturtu, horfa á sjónvarpið, taka til og svoleiðis. En þó ég sé svona mikið ein heima með Ólaf Vigni þá leiðist mér aldrei það er svo gaman að sjá hvað hann er fljótur að læra, núna brosir hann mjög mikið og það eru alltaf að koma ný og ný hljóð frá honum, þetta er æði og ég er örugglega ein sú montnasta mamma sem ég veit um. Núna er ég bara að bíða eftir að Ólafur Vignir vakni, sem mér heyrist hann vera að gera svo ég verð að láta þetta gott í bili.

KVITTA


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 14:34:03 / annarosa

Föstudagur

Núna erum við Ólafur Vignir bara í Borgarnesi og ætlum að vera fram á sunnudag en við komum á þriðjudag. En þar sem ég er ekki búin að blogga frá því á miðvikudag þá ætla ég að renna yfir síðustu daga.

Þriðjudagur: Hekla Maren var hjá okkur Ólafi Vigni og við fórum að labba og komum við á róló og svoleiðis. Um kvöldið kom svo Jón Ingi og fór hann svo í fótbolta og á meðan pakkaði ég niður og svoleiðis og svo keyrði Jón Ingi okkur í Borgarnes en þar sem eitthver hefur sagt mér að ófrískar konur mættu ekki fara í ökumat eða taka bílpróf vegna þess að viðbrögð hjá ófrískum konum eru ekki góð (en þetta reyndist vera rugl) þá hafði ég ekki farið í ökumat á þriðjudag svo ég lét Jón Inga keyra því ég er ekki með skirteni. En mamma og pabbi komu bara heim frá Portúgal á þriðjudaginn svo við komum bara um kvöldið. Við Ólafur Vignir fórum svo bara að sofa og svaf prinsinn vel.

Miðvikudagur: Við Ólafur Vignir fórum framúr um 11 og þá var haft sig til og brunuðum við til Reykjavíkur í sól og geðveiku veðri. Ólafi Vigni fannst ekki gaman að vera í bílnum á meðan það var svona heitt og þar sem ég tók ekki með mér vagn þá varð ég bara að halda á honum aðeins úti á meðan mamma skrapp til tannsa. Svo var ferðinni heitið til afa og Guðrúnar en þau höfðu ekki sé prinsinn og auðvitað fannst þeim þetta vera bara fallegsta barn í heimi, segir mamman allavega. Svo kíktum við til Betu en stoppuðum bara stutt og Ólafur Vignir fékk að nærast og svo var ferðinni heitið heim í Borgarnes. Þegar þangað var komið var bara slappað af og fengið sér að borða en svo komu Edda Bára, Jónas, Sævar og Arnór Ingi að kíkja á Ólaf Vigni en Edda Bára var sú eina sem hafði séð hann áður og það var á sjúkrahúsinu. Við horfðum bara á sjónvarpið og amman og afinn rifust um drenginn, kannski ekki alveg að rífast en samt fengu að skiptast á að skipta um bleiur og svoleiðis. Svo fórum við bara að sofa.

Fimmtudagur: Við Ólafur Vignir fórum aftur fram um 11 og þá var nært sig og farið út að labba þar sem veðrið var frábært. Við tvisvar út að labba með Ólaf Vigni og sofnaði hann í bæði skiptin og svaf fyrst í 2 klst og svo í 1,5 klst. Það var fátt annað gert í gær en að horfa á sjónvarp og vera úti. Svo var farið inn í rúm og sofnaði minn um 1 og svaf til hálf sjö í morgun en sofnaði fljótt aftur og svo vöknuðum við um 11 í morgun og fórum fram. Ólafur var vakandi til kl 12 og fór hann þá út í vagn og er enn sofandi. En ég drullaðist svo í þetta ökumat áðan og fá bráðurm skirteni sem endist þar til ég verð of gömul til að keyra og get ég því orðið sjálfstæðari fyrir utan Búðardal og keyrt hvert á land sem er án þess að hafa áhyggjur á því að þurfa að borga morðfjár ef ég verð stoppuð. munið að kvitta Anna Rósa


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 15:34:46 / annarosa

ömurlegt

Já þetta er einn af fáum sumardögum sem hafa verið í sumar og viti menn ég er veik. Ég held að ég hafa borðað eitthvað óæskilegt því ég held engu niðri og Ólafur Vignir var órólegur og svaf illa. En núna líður okkur báðum betur og hann sefur. Ég er enn með pínu hita en ekkert til að tala um og svo er ég búin að vera með hausverk en ég tók verkjatöflu sem lagaði það. En já í dag hafði ég hugsað mér að setja Ólaf Vigni út í vagn en nei þá ákváðu kallarnir að koma og vinna í garðinum og grunninum við hliðina á húsinu.:evil:

Hekla Maren ætlaði líka að vera hjá okkur í dag en útaf því að ég var veik þá fór Elfa með hana annað:S Það hefði verið gama að fara út að labba með þau bæði í dag og fara með Heklu Maren á róló eða eitthvað. Hún er eitt það auðveldasta barn til að passa, það er bara gaman að hafa hana því þegar maður er upptekin þá kveikir maður á sjónvarpinu og setur löggulí í tækið og hún situr og horfir og svo er líka gaman að leika við hana. En Mikael var svolítið öðruvísi þegar ég passaði hann, enda bara 1 árs þá, en hann var meiri grallari en núna er hann orðin svo stór og alger töffari og er bara feimin við mig. En nóg um frændsyskin mín, vona bara að það verði svona lítið mál að passa mín börn.

En já semsé mitt plan fyrir daginn gekk ekki alveg upp. Kannski kemur Hekla Maren bara á morgun ef ég verð alveg búin að ná mér og þá verður kannski hægt að fara út að labba. En svo er ég að pæla að fara bara í Borgarnes annað kvöld því mamma og pabbi koma heim á morgun og ég mér leiðist hér þannig að ég fer bara til þeirra, þau eru nefnilega bæði í fríi svo við Ólafur Vignir verðum ekki alveg ein. Svo fer Jón Ingi líka vestur á næstu helgi að hjálpa pabba sínum að heyja.

En í gærkvöldi þá byrjaði mér að líða illa og þá þurfti Ólafur Vignir að verða órólegur og svaf því lítið sem ekkert í nótt, og þann tíma sem hann svaf þá leið mér svo ill að ég gat ekki sofið. Svo ég sofnaði ekki mikið fyrr en um hálf 5 þá náði ég að sofna og svaf til 6. Svo í morgun þá kom ég fram kl 8 og er búin að liggja bara löt uppí sófa að reyna að slappa af og svo kom Laufey (hjúkka sem er að leysa Ásgerði af) og hún vigtaði prinsinn og viti menn minn er búin að þyngjast um 400 gr á einni viku (það er talið gott að þyngjast um 180-200 gr). Hann er að verða 6 kg (hann er 5920 gr) Minn er bara stór og flottur. Svo náði hann að pissa á gólfið í eldhúsinu þegar það var verið að vigta hann.:frown: þetta er það eina sem er betra við að eiga stelpu, þær pissa ekki útum allt.

Jæja þetta er bara komið fínt, munið að kvitta.

Anna


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 16:11:25 / annarosa

Smá færsla

Já í dag er búið að vera fjör hjá mér, Hekla Maren kom og var í heimsókn hjá okkur og við horfðum á Lögglulíf og fórum útá róló og svo teiknuðum við myndir og fleira skemmtilegt. En Ólafur Vignir er allur að verða betri í maganum af þessum dropum. Við Ólafur sváfum rosalega vel í nótt og minn svaf fyrst í 4 klst svo kom tími á bleiu og sopa og svo svaf hann í 3 klst og þegar hann var ný sofnaður aftur þá kom Hekla Maren og minn svaf fram að hádegi. Ég hef annars lítið verið að gera, fékk heimsóknir í gær og fyrst voru það Inga, Fanney Þóra og Sigurvin Þórður sem komu í heimsókn og svo komu Birgitta og Mæja og með þeim voru Þóra Björg og Arnór Gauti. Það gerist svo lítið í mínu lífi, allavega lítið sem eitthverjir myndu nenna að lesa hér.

Minn er bara að verða mánaðargamall á mánudaginn, ekkert smá fljótt að líða. Síðasti mánuður meðgögunnar var mun lengur að líða. Það er samt voða gott að vera búin með meðgönguna en samt þegar ég horfi aftur þá var þetta svo fljótt að líða og mér finnst ég hafa fengið jákvætt í gær, samt fannst mér þetta svo lengi að líða á meðan á þessu stóð. Núna er ég samt farin að sakna kúlunnar minnar smá það er svo skrítið að vera allt í einu bara 15 kg léttari. Svo passa ég ekki í nein föt, ekki enn farin að komast í öll gömlu fötin mín og svo eru óléttufötin allt of stór. Ég er reyndar farin að geta verið í einum gallabuxum og ég kemst í aðrar en ég get varla hreyft mig í þeim. Vona að maginn verði ekki mikið lengur að jafna sig.

En hvernig er þetta á ekki að koma neitt sumar hér? Þetta er búið að vera ömurlegt sumar, ef sumar skyldi kalla, það er bara rigning og rok. Þetta er ömurlegt og ég einmitt í orlofi. Vona að þetta fari að skána, vona að það verði fínt um verslunamannahelgina því þá langar mig að kíkja pínu þangað sem við erum með hestana, bara svona í klukkutíma eða svo. Svo verður bara hangið heima með Ólafi Vigni og Jóni Inga.

En munið að kvitta

Anna


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 16:22:52 / annarosa

10 júlí

Jæja þá er minn orðin 3 vikna. Í morgun kom Ásgerður og kíkti á prinsinn sem stækkar og þyngist vel, hann er orðin 590 gr þyngri en hann var fyrir 11 dögum sem þýðir að hann er 5520 gr. Ásgerður sagði að það væri bara frábært.:D

En annars er ekkert að gerast hjá mér, um helgina fóru allir á Leifshátíð en við fjölskyldan tókum því rólega á meðan. Birkir var einn af þeim sem fór á leifshátíð svo hann kom og leit við á föstudaginn og hann kom með video sem mamma og pabbi lánuðu okkur, nú vantar bara lost. Svo kom hann með sjónvarpið mitt sem ég ætla að hafa inní herbergi svo ég geti legið þar og horft á sjónvarpið á meðan ég kúri með Ólafi Vigni á morgnann þegar hann er að drekka.

Í gær þá kíktum við vestur og Jón Ingi fór að hjálpa pabba sínum úti á túni og við Ólafur Vignir slöppuðum bara af á meðan. Svo komum við heim um kvöldið og það var nú ekkert mikið sem gerðist eftir það, horfði á sjónvarpið, gaf Ólafi Vigni og fór svo að sofa

kvitta

Anna


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 21:21:41 / annarosa

Aftur orðin smá slöpp

Já ég er komin með stálma AFTUR, þetta er ekkert smá sárt. En já mér er farið að líða illa núna, held ég sé með hita og svo er mér kalt og með hausverk og beinverki. Vona að þetta fari að skána. En í dag höfðum við Ólafur Vignir það rosalega gott, við kúrðum saman undir sæng, hann bara á bleiunni og ég bara á brjóstahaldaranum og buxum, honum finnst svo gott að liggja svona þétt upp við mig og finna hjartsláttinn. En við fengum líka heimsóknir í dag, Ingunn kíkti á okkur í smá stund en minn grétt bara á meðan (svangur), svo kíktu Elfa, Rúna, Hekla Maren og Mikael Fannar og Ólafur Vignir brosti fyrir Rúnu (fyrsta brosið kom í morgun og ég ekki með myndavél), en rosalega er Mikael að stækka hratt, það eru komin ein 5 ár síðan ég passaði hann. En svo kíktu Birgitta og Helgi á okkur fjölskylduna og þau stoppuðu smá. En núna er ég bara að láta mér leiðast á meðan Ólafur Vignir sefur.

Birkir er á leiðinni með Sjónvarpið mitt svo ég get horft á sjónvarpið inni í herbergi á meðan ég er að kúra með Ólafi Vigni á morgnanna. Svo kemur hann líka með video sem mamma og pabbi ætla að lána okkur svo við getum fengið Lost lánað hjá Birgittu og horft á...hlakka til, þetta eru rosalegir þættir.

En núna er ég að fara að horfa á sjónvarpið

Kvitta

Anna


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 13:04:38 / annarosa

Miðvikudagur

Jæja þá er bara komin miðvikudagur...tíminn er svo fljótur að líða og Ólafur Vignir er bara orðin 2 og 1/2 vikna gamall strax.

En mamma og pabbi eru á portúgal núna og ég öfunda þau ekkert smá...bara sól og hiti og hangið á ströndinni og borðað úti, bara notalegt. En þau ráða varla við sig, þeim langar að kaupa svo mikið fyrir Ólaf Vigni og er þetta bara annar dagur af 14. Það er gaman að vera fyrsta barnabarnið, svo er allt svo miklu ódýrara úti að maður tímir ekki að sleppa að kaupa það sem maður sér.

En mamma og pabbi eru á sama hóteli og við Jón Ingi vorum á í fyrra...alveg frábært hótel með frábærum sundlaugagarði. Æ hvað mig hlakkar til að geta farið út með Ólaf Vigni, kannski þegar hann er 3 ára.

Jæja hef ekki meir að segja

Anna


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Dagsetning
23. febrúar 2012
fjölskyldan